Jimmy boy...
27.07.2006 00:21:51 / morrison

íslendingar

Íslendingar vilja allt eða ekkert

Þeir fá ekki allt

svo þeir fá ekkert

                 - Jón Sigurðsson Forseti -



» 2 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 23:47:45 / morrison

hræðslubirta....

Þegar hugmyndaflæðið frýs við yfirborðið og bersýnilegar hugsanir glitra í dagsbirtunni ertu orðinn virkilega fyrirséð persóna sem einhæfir sjálfann þig á sömu braut allt þitt líf. Einverungur sem heldur að hann eigi félaga hér og þar enn eru í minnsta lagi kunningjar......

....þetta er hræðslutilfinning sem ég fékk um daginn um hvernig líf mitt gæti fests í skorðum og ég myndi enda sem brothættur kaupsýslumaður á smá plássi líkt og Eskifirði.....

.... Þess vegna neita ég að staldra við og nota vasaljós mitt til þess að skyma í kringum mig enn ekki bara beint fram á veginn svo ég sjái hvert ég labba.

                  Þórgnýr Viquel


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 21:56:08 / morrison

Þetta var það besta á Roskilde...........

VETO

WOLFMOTHER

MATISYAHU

ROGER WATERS

SIGURRÓS

THE RACOUNTERS

THE STROKES

                  auk þess að Kubburinn varð eftir í 2 daga vegna mistaka við bókun.


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 22:32:02 / morrison

pass it on...

pöddur skríða um í höfði mínu og tilgerðarleysið eykst með hverri mínútu. Einbeitingin dofnar þó sætir sigrar vinnist með erfiðleikum og útlitið fölnar upp í vonleysislega svipi sem hvarta frá hverri taug til annarrar og raddböndin senda frá sér óflæði sem brennir alla getu til að lifa sáttur.
   Andardrátturinn styttist með öllum herlegheitum dauðans sem bíður eftir því að maður misstigi sig í þrepi, falli hart niður og brottni í ósjánlegamola segi lífþrautarinnar.
  ó, svo er það lyktin sem að rotar öll skynfæri til svefns með rothöggi sem fyrir finnst hvergi nema í tilbúningi. Slíkt er hending ef það kemur fyrir.
   Hér ég sit einn og eimdarleikinn bítur af mér allt hugvitslegt og öskra pass á náttúruna......

Ég er veikur...

                                       Þórgnýr Viquel


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 02:07:20 / morrison

takið er laust við hið fasta

þetta bragðast einsog óskundinn af sjálfum mér sem ég er löngu hættur að nenna að þróast frá, er reyndar bara fastur við og tonnatakið er óbærilega mikið. Nætur breytast í daga og dagar í nætur, allt snýst í kringum mann enn sjálfur er maður fastur og fattar ekkert hvað er að gerast, horfir bara á og ályktar að sé í góðu lagi. Horfir yfirborðslegum augum á s´jalfann sig og aðra og viðurkennir ekki staðreyndir sem að fyrir löngu voru sannaðar af sérfræðingum, sérmenntuðum sérfræðingum. Er þetta að vera ungur lærlingur í skóla ímyndaðra vera sem telja sig vera yfir mann hafðan og senda okkur skeyti í gegnum sendiboða á jörðu og kalla sig presta, djákna, nunnur eða annað slíkt..... Toggi

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 01:40:49 / morrison

bump or hump

hvaða andskotans mannvonska hefur komið yfir þessa vitleysinga að troða hraðahossum út um allt. Er bærinn að reyna að vinna sér inn einhver stig. Eða er þetta allt gert í þeim tilgangi að hnakkatöffarar geti ekki lengur keyrt um á lækkuðum trúbó klessubílum út um allan bæ, ef svo er þá fá þeir hálft stig fyrir viðleitni gagnvart okkur sem að hálf fyrirlítum þessa glansdollur. Helst langar mig að fara með sleggju og brjóta þetta allt saman með Gunna iðnaðarmanni, eða finna upp svifbílinn..... hvað ætla þeir að gera þá, Ha, setja upp hossuverði á borð við Reyni massa við hverja party hossuna sem hóta að lemja þig ef þú stoppar ekki. Þetta mun koma niður á okkur öllum saman einhverntímann, sanniði til.... party hossur drepa einsog hraðakstur...............Þórgnýr bumping up and down

» 7 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 23:23:18 / morrison

gersemi uppáhaldsins......

það þekkja það allir að komast ekki yfir lög og jafnvel diska. Þessa dagana kemst ég einmitt ekki yfir bandið Dungen sem að er sænskt rokk band sem setur saman gæða hljóma af bestu gerð. Þó er eitt lag sem að skagar hærra upp úr sjónum en hin og það er slagarinn PANDAN. Þetta er lag ársins til þessa ásamt gold lion með yeah yeah yeahs. Ásamt Pandan eru lög einsog ta de lungt og sluta folja efter sem að eru meistaraverk. Hér með mæli ég með að allir drulli sér á www.myspace.coml dungen til þess að lýða á þetta sænska undur. Þórgnýr....er að missa vatnið...slef

» 5 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 00:33:01 / morrison

brask....

Skil ekki slagorð í auglýsingum. Ég meina ágætlega heilbrigður maður fattar alvega að það sem stendur undir auglýsingunni eða það sem sagt er í sjónvarpsauglýsingu er náttúrulega bara lágkúrleg sölumennska.

" opal, hressir, bætir og kætir " - þetta er náttúrulega bara smá djók, en bull en bætir það eitthvað söluna ?

svo sá ég auglýsingu um megrunarpillur sem að ég man ekki hvað hétu, enn kölluðust eitthvað ipmx.

" ipmx megrunar pillurnar gerir þig grennri "  sá sem að trúir því að pilla geri mann grennri er spilltur af sjónvarpsglápi og heilaþveginn af endalausri auglýsinga þvælu. Enn því miður er til þetta fólk sem að trúir auglýsingum.

líka trúir einhver að eitthvað sé best í heimi ? besta pítsa er heimi er daddaraddara..... þó það sér bannað að segja það að þá er ýjað að því með því að segja " líklega besta "

 Er það góð sölumennska eða erum við bara auðtrúa vileysingar og tökum öllu sem sagt er í auglýsingum alvarlega. Jafnvel skjótumst út í búð og kaupum nýjasta tyggjóið sem að er sykurlaust og miklu betra en öll hin sykurlausu tyggjóinn.

merkilega sorgleg getum við verið.

Þórgnýr....


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 02:11:21 / morrison

blabla

" hæ bara að er kvitta "

kvitta hvað ? að þú komst á síðu. Já til hamingju, kvittaðu. Þú hefur kannski ekkert betra að segja af því að þú last ekkert eða að það stendur ekkert í blogginu nema.

" ég fór út í búð að kaupa mér snúð. Svo fór ég að læra og svo fór ég í bíó og svo fór ég á rúntinn og svo að sofa "

bara að kvitta..... 
                          ........Þórgnýr

» 6 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 13:28:02 / morrison

Fegrun...

Allt sem að kemur þér fyrir augum er lýgi, uppspuni, tilbúningur, ýkjur eða ýmindun.
   
Þegar að þú horfir á fréttirnar í dag sérðu ekki raunveruleikann, heldur aðeins hálfann raunveruleikann sem að er veruleikinn sem að fréttirnar fegra og sýna þér. Allt þe´ssar stríðs fréttir er áróður frá bandarískum miðlum.

Hvernig klæðum við okkur ? jú við klæðum okkur lang oftast eftir tónlistar smekk og stefnum. Það er bara sannleiki. En erum við þá ekki að ýminda okkur með einhverjum leik að kaupa bara þennan fatnað en ekki hinn ? erum jafnvel bara tilbúningur í huga okkar.

Sögur sem að fólk segir eru aldrei alveg eins og þær voru í fyrstu. Þó maður sjálfur segir frá sinni eiginn sögu. Allt af er einhverju bætt við eða ýkt. Svo getur maður líka einangrað söguna á sitt band. Það að segja ef að þú einn sást hvað gerðist er alltaf hægt að krydda eilítið í kringum það.

Hvað segja stjórnvöld við okkur ? jú, að álver og stór iðja sé málið í dag. Í gær sá ég það svart á hvítu hvernig stjórnvöld leika á mann. Þau voru að réttláta það að mega sökkva einu svæði á austurlandi bara út að því að það var aldrei neitt um að vera þar, bara sandfok og ekkert annað. Þetta er svæði á borð við Reykjavík og þegar ákveðinn maður ( Andri snær Magnason ) ákvað að skoða þetta aðeins betur kom í ljós að þarna á þessu svæði var gífurleg náttúrusýn. stórir flottir fossar, fallegar ár með rauðum klöppum, stuðlaberg í gilum, fastur gróður og dýralíf, þar á meðal Hreindýr og eitt stærsta Máva varpklettarsvæði landsins. Einnig eru heitar laugar þarna og það sem meira er að þessi staður er alveg ágætlega sóttur af ferðamönnum.
  
    Fólk reynir ávallt að koma öll fram eins fallega og þau geta og réttláta flest allt sem að það gerir. Reyna að sleppa frá raunveruleikanum.

Þórgnýr.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 17:49:59 / morrison

pæling.

Lá út í snjónum í dag í brjáluðum stormi og fékk kaldan snjóvindinn framan í mig. Það var óþægilega þægilegt og minnti mig á það að það eru bjartar hliðar í öllum málum, veðrum, samskiptum og hverju sem er. Það skiptir svo rosalegu máli hvernig maður vill líta á hlutina. Er slæmt að það sé vont veður í dag ? ekkert endilega eins og það getur verið slæmt að það sé gott veður. Í dag átti ég mér góðann laugardag úti í snjóhríð og einn sá besti sem ég hef átt lengi, í skíta veðri.

Skiptir máli hvort að þú sért fótbrotinn ef að þú hefur hugsunina og andlegan styrk þinn á réttum stað ? bara pæling..... hugarlegt ástand skiptir meira máli enn allt annað sem segir mér það að hamingja er hugarbundin.


...... Þórgnýr

» 15 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 15:04:48 / morrison

næstum allt er djók....

Lífið er djók og öllu því fylgjandi.

Baugsmálið er djók þar sem að málskostnaður er kominn hátt yfir 100 milljónir sem ríkir skuldar, sem að VIÐ skuldum.

Jólin og páskarnir eru djók í nafni Jesús þar sem að hann er ekki til.

Tíska er djók þar sem við förum eftir því sem að aðrir segja okkur að sé cool.

Bílpróf er djók þar sem að þeir sem að hafa það halda að þeir séu fyrir ofanann hafðan.

Peningar eru djók, þeir eru úr trjám og bleki.

Trú er djók...að halda að eitthvað sé til sem að þú hefur ekki hugmynd um hvað er.

fjarlægðir eru djók. Í dag geturu gert allt í gegnum allt og farið um allt með nánast öllu.

ást er djók. Annað hvort elskaru manneskjuna eða hatar en samt er það ást.

Að kaupa rándýra kistu fyrir manneskju sem að er dáinn svo hún geti rottnað þar er pínu djók þó það sé sætt.


Það eina sem er ekki djók er dauðinn þar sem að þú verður einhvern daginn ekki neitt, nema ormamatur og fíkn.


                      Toggi Djók.....ég er djók. Þú ert djók. Blasss..splass,




» 22 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 15:03:38 / morrison

Súper konan..vúhú !!!!!!

Allt er í rústi á Íslandi og allir allt of feitir. Það er ekkert hægt að gera nema að borða meiri sætindi og óhollar fitusýrur sem að setjast beint á rassinn, myndar björgunarhring, undirhöku og þykk læri. Aumingja við erum svo vansæl og þunglynd að við dettum alltaf í matarþunglyndi og étum okkur í átt að hamingjunni. Ekkert hægt að gera.

ENN...... Daddaddara.....búmm búmm og bang

Hvað er að gerast, jú þarnar kemur ofurkonan fljúgandi með gæða visku yfir okkur og ætlar að bjarga Íslandi. Hún er mun sterkari en Eiður Smári og töluvert magnaðari en Íþróttaálfurinn......Þetta er enginn önnur enn Súper-Þorgerður Katrín sem ætlar að hjálpa vansælu þjóðinni og ætlar að láta alla hreyfa af sér spikið. Hún ætlar að Íþróttavæða okkur og hjálpa okkur frá fitufeninu...VEEIIII !!!!!!!!!!!!!!!!

Okkur er borgið og ég finn fyrir því að ég er að verða ánægðari og ánægðari nú þegar. Þessi Súper-Þorgerður Katrín er æðisleg, meira að segja það æðisleg og uppörvandi að ég er farinn út að hlaupa núna strax. YESSS !!!!!

Bless...og muniði að borða hollt og hreyfa ykkur. Það segir Súper-Þorgerður Katrín

Ps. þetta er ekki kaldhæðni, eða er það nokkuð.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 12:38:59 / morrison

The moment's already passed

Eftir party til góðs ? jájá segjum það bara. Sérstaklega löng eftirparty hjá Guðjóni Magnússyni. Takk Guðjón, þú ert sætur.

Hey you, out there on your own
Sitting naked by the phone
Would you touch me?

The crystal ship is being filled
A thousand girls, a thousand thrills
A million ways to spend your time
When we get back, I\'ll drop a line

I\'ll laugh until my head comes off
I\'ll swallow till I burst.
Until I burst
Until I .

People see me all the time and they just can\'t remember how to act
Their minds are filled with big ideas, images and distorted facts.



Þórgnýr Helgason......


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 16:01:57 / morrison

Þriðjudagur

fólk í flík með hermanna munnstri ? Langar þeim að vera í hernum eða finnst þeim töff að vera í hernum ? Eða eru þetta svona wanna be hermanna fólk sem að .ykjast hata Saddam ? kannski tísku fyrirbrigði... Allavega þá skil ég það ekki. Ekki mín deild. Td. Magga systir Skúla er alltaf í hermanna stakk. Efast um að hún pæla mikið í því, bara þetta er nikita stakkur, það bjargar öllu ef það er nikita. Ég ætla að heilaþvo hana einhvern tíman.

.......Líka fólk í Che Guevara bol og heldur að hann sé frá Kúbu langar mig mest til að hýða með blautri svipu. Eða nei þá er ég dottinn í hermannafílinginn.....umhhhh, heilaþvo það bara. Og ef ég sé Gothara í svona bol fá ég taugaáfall.



Þórgnýr Helgason.......


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6